Um fyrirtækið
Stjórnsýsluráðgjöf ehf. er framsækið þjónustufyrirtæki sem sérhæfir sig í ráðgjöf fyrir sveitarfélög, stofnanir og ráðuneyti. Stjórnsýsluráðgjöf er eina fyrirtækið á Íslandi sem sérhæfir sig í ráðgjöf fyrir opinbera aðila. Fyrirtækið býr yfir mikilli reynslu og hefur aðgang að sérfræðingum á sviði stjórnsýslu, stefnumótunar, fjármála, rafrænnar þjónustu, starfsmannamála og kynningarmála.
Sigurður Tómas Björgvinsson, menntun og reynsla
Sigurður er stjórnmálafræðingur frá HÍ og með framhaldsmenntun í alþjóðastjórnmálum og alþjóðahagfræði frá Gautaborgarháskóla. Hann hefur undanfarin ár rekið Stjórnsýsluráðgjöf ehf, sem hefur sérhæft sig í verkefnum fyrir sveitarfélög og opinberar stofnanir. Sigurður hefur m.a. unnið að stjórnsýsluúttektum, stefnumótun, sameiningu sveitarfélaga og breytingastjórnun. Eitt af sérsviðum Sigurðar hefur verið uppbygging rafrænnar stjórnsýslu og íbúaþjónustu á netinu. Áður starfaði Sigurður m.a. hjá alþjóðlegu ráðgjafarfyrirtækjunum PricewaterhouseCoopers og IBM. Einnig var Sigurður fréttamaður hjá RÚV og vísindafulltrúi hjá framkvæmdastjórn ESB í Brussel.
Stjórnsýsluráðgjöf ehf
Strandgötu 11
220 Hafnarfjörður
Símar: 6931533 og 5343331
Netfang: stb33@internet.is
Kennitala: 440699-2359
Bankareikningur: 0111-26-7100


