Verkefnisstjórnun
Ráðgjafar fyrirtækisins hafa mikla reynslu af verkefnisstjórnun, hvort sem um er að ræða stærri eða smærri verkefni. Stjórnsýsluráðgjöf tók m.a. að sér verkefnisstjórnun í verkefninu Sunnan3 – rafrænt samfélag, sem er eitt stærsta og metnaðarfyllsta verkefni á sviði rafrænnar stjórnsýslu sem unnið hefur verið á Íslandi. Fyrirtækið hefur einnig tekið að sér fjölmörg verkefni á sviði sameiningar sveitarfélaga, og haft umsjón með verkefnunum allt frá undirbúningi til gildistöku nýrra sveitarfélaga. Ráðgjafar fyrirtækisins hafa einnig reynslu af stjórnun alþjóðlegra verkefna t.d. nýsköpunar- og þróunarverkefna sem styrkt hafa verið af áætlunum og sjóðum Evrópusambandsins. Þá hafa ráðgjafar fyrirtækisins setið í stjórnum fjölda nýsköpunar- og þróunarverkefna sem fjármögnuð hafa verið af áætlunum ESB.
Stjórnsýsluráðgjöf beitir viðurkenndum aðferðum við stjórnun verkefna og leggur áherslu á að nota einfaldar og skilvirkar aferðir. Mikilvægt er að aðlaga aðferðir verkefnisstjórnunar við stærð og umfang verkefna. Fyrirtækið leggur einnig áherslu á að beita aðferðum þar sem markmið og árangur er mælanlegur með einföldum hætti. Fyrirtækið getur komið að verkefnisstjórnun á hvaða stigi sem er, en skipta má verkefnisstjórnun í eftirfarandi þætti:
- Undirbúningur verkefnis
- Skilgreining verkefnis
- Stjórnun verkefnis
- Verk- og kostnaðaráætlanir
- Stjórnun verkþátta
- Framkvæmd verkþátta
- Verkefnaeftirlit og framvinda
- Verkefnislok
- Árangursmat - lærdómur


