Stjórnsýsluúttektir
Stjórnsýsluúttekt er ein tegund árangursmats sem felst fyrst og fremst í því að greina hvernig stofnunum, ráðuneytum og sveitarfélögum gengur að sinna lögbundnum og verkefnum sínum og yfirlýstum markmiðum sínum. Aðferðir Stjórnsýsluráðgjafar við úttektir sem þessar miðast m.a. við að meta það hvort árangur stofnunar eða sveitarfélags er í samræmi við markmið og skjalfesta stefnu viðkomandi einingar. Oft þarf að byrja á því að meta hvort skýr stefna liggi fyrir og þá hvernig henni er fylgt eftir. Einng þarf að meta bæði hagkvæmni og skilvirkni í starfsemi stofnanna og sveitarfélaga.
Fyrirtækið leggur mikla áherslu á að stjórnsýsluúttekt ljúki með markvissum ábendingum um úrbætur um það sem betur má fara. Slíkar útbætur geta verið í formi stefnumótunar, nýs stjórnskipulags, breytinga á verkferlum og starfsaðferðum eða nýjum áherslum í eftirliti og árangursmælingum.
Rekstrarúttektir
Markmiðið hjá flestum stofnunum og sveitarfélögum er að veita sem besta þjónustu með sem minnstum tilkostnaði. Stjórnsýsluráðgjöf hefur mikla reynslu af rekstrarúttektum og rekstrargreiningum, m.a. í tenglsum við sameiningar sveitrfélaga. En ráðgjafar fyrirtækisins hafa einnig komið að rekstrarúttektum fyrir stofnanir, ráðuneyti og fyritæki. Í rekstrarúttekt er framkvæmd greining á stöðu viðkomandi rekstrareiningar með það að markmiði að finna leiðir til bættrar afkomu.. Stjórnendur sveitarfélaga og stofnana fá þannig í hendur yfirlit yfir stöðu einstakra eininga og málaflokka. Í kjölfarið koma ráðgjafar með ábendingar um mögulega hagræðingu og breyttar áherslur í rekstri.
Við framkvæmd rekstrarúttekta hjá Stjórnsýsluráðgjöf er farið með kerfisbundnum hætti í gegnum alla rekstrarþætti viðkomandi stofnunar eða sveitarfélagas. Einnig er horft á stjórnskipulag og stjórnunaraðferðir og reynt að koma auga á tækifæri til þess að bæta reksturinn með markvissum og samstilltum aðferðum. Við gerð rekstrarúttekta er m.a. horft á það hvernig stefnan endurspeglast í raunverulegum framkvæmdum og þjónustu stjórnsýslunnar, einnig er rýnt í áætlanagerð, innkaup, framkvæmdakostnað, skipulag og verkferla, fjárbindingu, innheimtu o.fl.


