Stjórnskipulag endurspeglar stefnu
Skilvirkt stjórnskipulag er eitt mikilvægasta verkfrærið sem stjórnendur hafa yfir að ráða. Stjórnskipulagið á að endurspegla stefnu stofnunar eða sveitarfélags og er öflugasta tækið við að fylgja stefnunni eftir og koma henni í framkvæmd. Í nútíma þjóðfélagi þar sem breytingar eru örar er nauðsynlegt að endurskoða stjórnskipulag reglulega. Breytingar á stjórnskipulagi geta komið til vegna sameininga, stefnumótunar, nýrra verkefna, breytinga í innra og ytra umhverfi eða með tilkomu nýrra stjórnenda.

Ekki bara skipurit
Mikilvægt er að gera sér grein fyrir því að mótun stjórnskipulags er annað og meira en bara “nýtt skipurit”. Uppbygging nýs stjórnskipulags er verkferli út af fyrir sig, eins og sést á meðfylgjandi mynd. Mikilvægt er að greina áhrifaþætti og taka mið af stefnu og framtíðarsýn starfseminnar. Draga þarf fram öll verkefni sem viðkomandi eining þarf að sinna. Síðan þarf að móta skipulagið, skilgreina virkni þess, stjórnunaraðferðir og boðleiðir. Meta þarf starfsmannaþörf, samvinnu hópa og sviða. Einnig þarf að kynna endanlegt stjórnskipulag fyrir starfsfólki. Ekki má gleyma innleiðingunni og stjórnun breytinga með markvissum aðgerðum og skilgreiningu árangursmælikvarða.
Reynsla og þekking
Stjórnsýsluráðgjöf hefur mikla reynslu af mótun stjórnskipulags og breytingastjórnun fyrir sveitarfélög, stofnanir og ráðuneyti. Fyrirtækið getur komið að mismunandi þáttum stjórnskipulags, allt eftir þörfum og óskum viðskiptavina. Mótun stjórnskipulags er samvinnuverkefni stjórnenda og ráðgjafa - og starfsfólks eftir því sem við á.


