Stefnumótun
Stjórnsýsluráðgjöf hefur mikla reynslu af stefnumótun fyrir sveitarfélög, stofnanir og ráðuneyti. Fyrirtækið getur komið að mismunandi þáttum stefnumótunar, allt eftir þörfum og óskum viðskiptavina. Stefnumótun er samvinnuverkefni ráðgjafa, stjórnenda og starfsfólks. Lykillinn að velheppnaðri stefnumótun er virk þátttaka bæði stjórnenda og starfsfólks.
Framtíðarsýn
Aðalsmerki nútímalegrar stofnunar og sveitarfélags eru skýr stefna, markmið og framtíðarsýn. Góður stjórnandi þarf því reglulega að huga að stefnumótun til þess að bregðast við breyttum aðstæðum í sínu innra og ytra umhverfi. Það er margt sem getur kallað á stefnumótun sveitarfélags, stofnunar eða ráðuneytis, t.d: ný verkefni, færri verkefni, nýjir stjórnendur, ný lög eða reglugerðir, breyttar kröfur almennings eða kröfur um bætta fjárhagslega afkomu.

Eftirfylgni
Stefnumótun er meðvitað og skipulagt verkferli. Mikilvægt er að byrja á að greina hlutverk, styrkleika og veikleika viðkomandi einingar. Algengast er að beitt sé svokallaðri SVÓT greiningu eða SEFT greiningu við stefnumótun. Í kjölfarið er hægt að móta stefnu með því að meta valkosti, taka ákvarðanir og setja sér skýr markmið. Innleiðing og breytingastjórnun eru oft vanmetnir þættir í stefnumótun. En það er mikilvægt að ljúka stefnumótun – t.d. með nýju stjórnskipulagi, aðgerðaráætlun, áranursmati og með því að framkvæma umbætur.


