Kynningarmál
Stjórnsýsluráðgjöf veitir fjölbreytta þjónustu á sviði kynningar- og markaðsmála fyrir stofnanir, ráðuneyti, sveitarfélög, samtök og fyrirtæki. Ráðgjafar fyrirtækisins hafa langa reynslu af stjórnun hverskyns viðburða, hvort sem um er að ræða ráðstefnur, námskeið, fundi eða sýningar. Fyrirtækið hefur einnig umtalsverða reynslu af útgáfu kynningarefnis, bæklinga, skýrslna, fréttabréfa o.fl. Stjórnsýsluráðgjöf hefur sérhæft sig í rafrænni stjórnsýslu og rafrænni miðlun upplýsinga og hefur reynslu í hönnun og ritstjórn heimasíðna og rafrænna fréttabréfa, auk þess að hafa aðstoðað fjölmarga aðila í þróun gagnvirkrar þjónustu á vefnum með svokölluðum rafrænum þjónustutorgum og íbúagáttum.
Fyrirtækið býður m.a. eftirfarandi þjónustu á sviði kynningarmála:
Stjónun viðburða – ráðstefnur, fundir og námskeið
- Undirbúningur
- Val á húsnæði
- Aðstoð við fjármögnun viðburða
- Boðslistar
- Aðstoð við dagskrá og val á ræðumönnum
- Veitingar
- Útlit og uppsetning húsnæðis
- Textagerð, hönnun og útgáfa fundargagna
- Auglýsingar og kynning viðburða
- Kynning til fjölmiðla
- Bókanir þátttakenda
- Frágangur erinda og niðurstaðna eftir að ráðstefnu lýkur
Ímynd og stefnumótun
- Stefnumótun í almannatengslum
- Boðskiptagreining
- Val á aðferðum
- Val á miðlum
- Kynningaráætlun
- Fjárhagsáætlun – fjármögnun
- Aðgerðaráætlun
Útgáfuþjónusta
- Kynningarherferðir
- Kynningarbæklingar
- Fréttabréf
- Blaðaútgáfa
- Textagerð
- Greinarskrif
- Viðtöl
- Ljósmyndun
- Hönnun, umbrot og prentun
- Söguritun, samantektir og ágrip
- Skipulagning myndasafna
- Þýðingar úr ensku og sænsku


