Íbúaþing
Öll nútímaleg sveitarfélög stefna að því að auka samráð og þátttöku íbúa í ákvarðanatöku og áhrif þeirra á sitt nánasta umhverfi. Íbúaþing eru einfaldasta og besta leiðin til þess að sýna virkt íbúalýðræði í verki.
Íbúaþing er vettvangur þar sem íbúar geta haft áhrif á framtíð þess samfélags sem þeir búa í, verið þáttakendur í að móta framtíð sveitarfélagsins. Með því að halda íbúaþing gefst almenningi kostur á að koma skoðunum sínum á framfæri á skemmtilegan og uppbyggjandi hátt.
Á íbúaþingum kemur fólk saman til þess að spjalla, hittast og koma skoðunum sínum á framfæri í léttu og óþvinguðu andrúmslofti. Þess vegna eru íbúaþing kjörin vettvangur til þess að ná til íbúa sem sjaldan láta í sér heyra.
Hverfaþing - skólaþing
Tilvalið er fyrir einstök hverfi og skóla í stærri sveitarfélögum að halda sérstök hverfaþing eða skólaþing til þess að gefa íbúum tækifæri á að ræða ákveðin hagsmunamál sem tengjast þeirra nærumhverfi. Það hefur sýnt sig að íbúa hafa mestan áhuga á að ræða málefni sem tengjast þeirra nánasta umhverfi, fjölskyldu og afkomu. Þess vegna er líklegast að almenningur fjölmenni þegar ræða á byggingu háhýsis, vaxandi glæpatíðni, lokun leiksvæða, sameiningu grunnskóla svo eitthvað sé nefnt. Nýlega var haldið velheppnað hverfaþing í Hafnarfirði þar sem viðfangsefnið var “uppeldisskilyrði barna í skólahverfinu”. Núþegar eru nefndir og stofnanir bæjarins farnar að vinna eftir ábendingum sem fram komu á þinginu. Þannig virkar íbúalýðræði. Hægt er að nálgast niðurstöður skólaþingsins í Hafnarfirði hérna:

Þjónusta
Stjórnsýsluráðgjöf ehf getur tekið að sér ráðgjöf, verkefnisstjórnun, undirbúning, framkvæmd og útgáfu veglegrar skýrslu um niðurstöður íbúaþings. Framkvæmd íbúaþings er fyrst og fremst samstarfsverkefni og þess vegna er algengt að þeir sem standa að þinginu taki að sér ákveðin verkefni og haldi þannig kostnaði í lágmarki.


