Fjármálaráðgjöf
Stjórnsýsluráðgjöf hefur mikla reynslu af fjölbreyttum verkefnumsem tengjast fjármálum og rekstri sveitarfélaga, stofnana og fyrirtækja. Fyrirtækið hefur m.a. haft umsjón með fjárhagsúttektum og hagkvæmniathugunum vegna sameininga sveitarfélaga, auk þess sem ráðgjafar á vegum fyrirtækisins hafa mikla reynslu af gerð viðskiptaáætlana, verðmats, fjármögnunar og rekstrarhagræðingu jafnt opinberra aðila sem og fyrirtækja.
Meðal þeirra lausna sem Stjórnsýsluráðgjöf býður á sviði fjármála eru:
- Rekstrarúttektir sveitarfélaga og stofnana
- Stefnumótun í opinberum rekstri
- Fjárhagsáætlanir
- Rekstrarhagræðing og kostnaðarstjórnun
- Hagkvæmniathuganir t.d. vegna sameininga eða fjárfestinga
- Viðskipatáætlanir
- Verðmat
- Fjármögnun t.d. styrkir vegna nýsköpunarverkefna


