Evrópuráðgjöf - styrkir og sjóðir ESB
Flestir þekkja reglugerðarfrumskóg Evrópusambandsins og almennt þau vandamál sem komið geta upp í alþjóðlegu samstarfi. Stjórnsýsluráðgjöf (móðurfélag Evrópuráðgjöf ehf) hefur á að skipa starfsmönnum sem hafa áratuga reynslu af áætlunum, verkefnum og reglugerðum ESB. Ráðgjafar fyrirtækisins hafa mikla reynslu af áætlunum ESB á sviði; nýsköpunar, þróunar, rafrænnar stjórnsýslu, upplýsingatækni, byggðamála, menningar, starfsmenntunar o.fl. Auk þess starfaði Sigurður Tómas Björgvinsson, framkvæmdastjóri fyrirtækisins, um tíma fyrir ráðuneyti iðnaðar- og upplýsingatækni hjá framkvæmdastjórn ESB í Brussel. Ráðgjafar fyrirtækisins hafa einnig starfað reglulega sem sérfræðingar við mat á styrkumsóknum fyrir fjölmargar áætlanir ESB í Brussel og hafa þannig öðlast dýrmæta innsýn í kröfur og matsferli Evrópusambandsins.
Stjórnsýsluráðgjöf hefur veitt fjölbreytta ráðgjöf á sviði evrópumála undanfarin ár, og hér að neðan er dæmi um þá þjónustu sem fyrirtækið veitir.
- Fjármögnun nýsköpunar og þróunarverkefna
- Undirbúningur og skilgreining verkefna
- Hagkvæmniathuganir á þátttöku í verkefnum
- Aðstoð við fjármögnun umsóknarvinnu
- Leit að samstarfsaðilum
- Aðstoð við gerð umsókna
- Aðstoð við gerð fjárhagsáætlunar
- Verkefnastjórnun
- Kynning niðurstaðna
- Stefnumótun í Evrópumálum
- Úttektir og mat á verkefnum og áætlunum fyrir stjórnvöld og ESB
- Samskipti og sambönd við embættismenn ESB (lobbýismi)
- Vöktun á áætlunum og upplýsingum fyrir stjórnvöld
- Vöktun á samstarfs- og viðskiptatækifærum fyrir sveitarfélög og fyrirtæki
- Aðstoð við útrás og markaðssetningu á EES svæðinu
- Stjórnun og fjármögnun viðburða, t.d. ráðstefnur, fundir og sýningar
Dæmi um áætlanir og verkefni sem íslenskir aðila hafa aðild að:
- 7. rammaáætlun ESB á sviði rannsókna- og nýsköpunar
- e-Ten, CIP og IDABC – áætlanir um rafræna stjórnsýslu
- Leonardo – starfsmenntaáætlun ESB
- ERASMUS og COMENIUS – menntaáætlanir ESB
- Culture 2007 – menningaráætlun ESB
- e-Content Plus
- e-Learning
- Youth for Europe – áætlun sem styrkir ungt fólk
- Northern Periphery Programme – NPP - byggðamál
- Competitiveness and Innovation Programme – CIP
- COST
- EUREKA
- Public Health
- Marco Polo II – samgönguáætlun


