Eldri fréttir
Ný heimasíða
Stjórnsýsluráðgjöf ehf hefur opnað nýja og glæsilega heimasíðu sem hér lítur dagsins ljós. Heimasíðunni er fyrst og fremst ætlað það hlutverk að kynna þjónustu og starfsemi fyrirtækisins. Á síðunni er að finna ítarlega lýsingu á allri þjónustu og ráðgjöf sem fyrirtækið veitir. Einnig er að finna lista yfir verkefni og viðskiptavini fyrirtækisins undanfarin ár. Stefnt er að því að reglulega verði birtar fréttir af nýjum verkefnum og almennt af starfsemi Stjórnsýsluráðgjafar. Það var Jón Steinar Guðmundsson hjá JSG sem sá um hönnun og forritun heimasíðunnar.
Samstarf
Stjórnsýsluráðgjöf hefur gert samkomulag við fyrirtækið Viðhorf ehf í Hafnarfirði um náið samstarf. Fyrirtækin bjóða bæði ráðgjafaþjónustu og skarast lausnir þeirra að hluta. Viðhorf starfar þó meira á sviði kynningarmála, rannsókna og gerð viðhorfskannanna, og mun Stjórnsýsluráðgjöf leita aðstoðar fyrirtækisins á þessum sviðum í framtíðinni. Upplýsingar um Viðhorf ehf má nálgast á heimasíðu fyrirtækisins: www.vidhorf.is
Hafnarfjarðarbær
Stjórnsýsluráðgjöf hefur átt mjög gott samstarf við Hafnarfjarðarbæ og stofnair bæjarins undanfarna mánuði. Fyrirtækið hafði umsjón með undirbúningi og framkvæmd svokallaðas skólahverfisþings í Vesturbæ og Norðurbæ Hafnarfjarðar í lok febrúar s.l. Þingið var haldið í Víðistaðaskóla og þótti takast mjög vel í alla staði. Þá hefur Sjórnsýsluráðgjöf verið Hafnarfjarðarbæ til ráðgjafar um uppbyggingu rafrænnar stjórnsýslu og þjónustu, auk þess að vinna ákveðin verkefni fyrir fjölskyldusvið bæjarins.
Ný skrifstofa
Þann 1. ágúst s.l. opnaði Stjórnsýsluráðgjöf ehf nýja skrifstofu í Venusarhúsinu svokallaða að Strandgötu 11 í Hafnarfirði, þar sem Sjómannafélag Hafnarfjarðar var áður til húsa. Stjórnsýsluráðgjöf deilir húsnæðinu með Viðhorfi ehf, en fyrirtækin munu hafa samvinnu um ýmis ráðgjafarverkefni og markaðssetningu.
- <<
- 1
- >>


