Stjórnsýsluráðgjöf
Stjórnsýsluráðgjöf ehf. er framsækið þjónustufyrirtæki sem sérhæfir sig í ráðgjöf fyrir sveitarfélög, stofnanir, ráðuneyti, samtök og fyrirtæki. Stjórnsýsluráðgjöf er eina fyrirtækið á Íslandi sem eingöngu sérhæfir sig í ráðgjöf fyrir opinbera aðila. Fyrirtækið býr yfir mikilli reynslu og hefur aðgang að sérfræðingum á sviði stjórnsýslu, stefnumótunar, fjármála, rafrænnar þjónustu, starfsmannamála og kynningarmála.
Þjónusta og lausnir
Fyrirtækið veitir ráðgjöf á fjölbreyttum sviðum, enda hafa ráðgjafar og samstrfsaðilar Stjórnsýsluráðgjafar bakgrunn á sviði stjórnmálafræði, stjórnsýslu, viðskiptafræði, fjármála, verkfræði, skipulagsmála, kynningarmála, hönnunar og hugbúnaðarþróunr. Hér að neðan má sjá lista yfir þjónustu sem fyrirtækið veitir.
- Stefnumótun
- Stjórnskipulag
- Breytingastjórnun - sameiningar sveitarfélaga og fyrirtækja
- Rafræn stjórnsýsla – rafræn þjónusta
- Stjórnsýsluúttektir, rekstrarúttektir og stöðugreiningar
- Fjármálaráðgjöf – viðskiptaáætlanir, hagkvæmnisathuganir o.fl.
- Verkefnisstjórnun
- Árangursstjórnun
- Kynningar-, markaðs- og útgáfumál
- Starfsmannamál – starfsmannastefna og starfslýsingar
- Íbúaþing/hverfisþing
- Viðhorfskannanir, þjónustukannanir og rannsóknir
- Evrópuráðgjöf – fjármögnun þróunarverkefna


